Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   lau 11. janúar 2020 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Handanovic hetjan í jafntefli gegn Atalanta
Lautaro Martinez skoraði mark Inter og var nálægt því að bæta við öðru
Lautaro Martinez skoraði mark Inter og var nálægt því að bæta við öðru
Mynd: Getty Images
Inter 1 - 1 Atalanta
1-0 Lautaro Martinez ('4 )
1-1 Robin Gosens ('75 )
1-1 Luis Muriel ('88 , Misnotað víti)

Inter og Atalanta gerðu 1-1 jafntefli í Seríu A á Ítalíu í kvöld en gestirnir áttu möguleika á því að vinna leikinn í blálokin.

Argentínski framherjinn Lautaro Martinez hefur verið iðinn við kolann á tímabilinu og hélt uppteknum hætti með því að skora á 14. mínútu. Romelu Lukaku lagði upp markið en þeir tveir hafa náð afar vel saman á leiktíðinni.

Martinez var nálægt því að bæta við öðru marki stuttu síðar en hann vippaði þá yfir markvörð Atalanta en Jose Luis Palomino hreinsaði á línu.

Robin Gosens jafnaði metin fyrir Atalanta á 75. mínútu og þá fékk Atalanta tækifæri til að vinna leikinn er Alessandro Bastoni braut af sér innan teigs. Luis Muriel steig á punktinn en Samir Handanovic sá við honum.

Lokatölur 1-1. Inter fer tímabundið á toppinn með 46 stig en Atalanta er í fjórða sætinu með 35 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner