Grealish samþykkir að fara til Everton - Guehi er til sölu fyrir rétt verð - Milan í viðræðum um Höjlund
   mán 11. ágúst 2025 11:06
Elvar Geir Magnússon
Palace tapaði áfrýjuninni og fer í Sambandsdeildina
Crystal Palace fer í Sambandsdeildina samkvæmt úrskurði CAS.
Crystal Palace fer í Sambandsdeildina samkvæmt úrskurði CAS.
Mynd: EPA
Alþjóða íþróttadómstóllinn CAS hefur staðfest niðurstöðu UEFA sem hafði dæmt Crystal Palace niður úr Evrópudeildinni og í Sambandsdeildina.

Palace áfrýjaði niðurstöðunni en það bar ekki árangur.

Palace, sem varð bikarmeistari, er ekki löglegt í Evrópudeildina þar sem félagið tengist eignarhaldi á Lyon sem er einnig í keppninni. Bandaríski viðskiptamaðurinn John Textor á hlut í Palace og er að auki meirihlutaeigandi í Lyon. Palace segir að Textor taki ekki þátt í ákvarðanatökum hjá félaginu en á það hlustaði UEFA ekki.

Palace vann sér inn þátttökurétt í Evrópudeildinni með því að vinna FA-bikarinn en UEFA dæmdi að ekki væri hægt að vera bæði með Palace og Lyon í Evrópudeildinni. Þar sem Lyon endaði ofar í frönsku deildinni en Palace gerði í ensku úrvalsdeildinni fékk franska félagið sætið.

Nottingham Forest mun taka sæti Palace í Evrópudeildinni en félagið hafði upphaflega unnið sér inn sæti í Sambandsdeildinni.
Athugasemdir
banner