| lau 06.des 2025 09:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
UTAN VALLAR: Breiðablik fékk 10,4 milljónir króna í gær
Breiðablik fékk í gær greitt 10.416.000 krónur vegna árangurs kvennaliðsins í Evrópubikarnum en þær eru komnar áfram í 8-liða úrslit keppninnar.
Greinin var einnig birt á utanvallar.is
Undankeppni Meistaradeildarinnar
Kvennalið Breiðabliks hóf Evrópuþátttöku sína í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Félagið tók þátt í fjögurra liða riðli sem fór fram á heimavelli FC Twente, en sem gestalið fær Breiðablik 80 þúsund evrur. Þar endaði Breiðablik í öðru sæti, en fyrir það fær liðið 12 þúsund evrur. Breiðablik fékk því samtals 92 þúsund evrur fyrir þátttöku sína í annarri umferð, en það var greitt af UEFA þann 12. september. Miðað við evrugengið þann dag þá fékk Breiðablik 13.211.200 krónur.
Undankeppni Evrópubikarsins
Þar sem Breiðablik lenti í öðru sæti dettur það niður í undankeppni nýstofnuðu Evrópubikarskeppninnar. Þar byrjaði Breiðablik í 2. umferð undankeppninnar og fékk fyrir vikið 65 þúsund evrur, en sú fjárhæð er óháð úrslitum. Þar mætti Breiðablik serbneska liðinu ZFK Spartak Subotica. Sú fjárhæð var greidd þann 31. október. Miðað við evrugengið þann dag þá fékk Breiðablik 9.412.000 krónur.
Sigur gegn Fortuna Hjörring
Næsti leikur Breiðabliks var í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins en þar mættu þær danska liðinu Fortuna Hjörring og fengu fyrir vikið 70 þúsund evrur. Sú fjárhæð var greidd í gær. Miðað við evrugengi gærdagsins þá fékk Breiðablik 10.416.00 krónur. Það kemur sér vel fyrir Breiðablik að krónan hefur veikst um 2,8% gagnvart evrunni frá síðustu greiðslu fyrir tæpum mánuði síðan.
Næsta umferð og næsta greiðsla
Breiðablik mun mæta sænska liðinu BK Häcken í 8-liða úrslitum keppninna en leikirnir fara fram um miðjan febrúar. Breiðablik mun aftur fá 70 þúsund evrur fyrir þá viðureign, óháð úrslitum, en sú fjárhæð verður greidd þann 6. mars 2026.
Breiðablik hefur því hingað til fengið 33.039.200 krónur fyrir Evrópuþátttöku kvennaliðsins í ár.


