„Það er allavega betri niðurstaða en í fyrra. Við stefnum hærra en þriðja sætið," sagði Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, í viðtali við Fótbolta.net.
Tilefni viðtalsins var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deild karla en Val er spáð 3. sætinu.
Tilefni viðtalsins var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deild karla en Val er spáð 3. sætinu.
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 3. sæti: Valur
„Mér líst mjög vel á tímabilið, það verður skemmtilegt að sjá hvernig þessar breytingar koma út, fleiri leikir sem held ég allir hafa kallað eftir og það er mikil tilhlökkun og mikil spenna."
Hvernig meturu undirbúningstímabilið?
„Auðvitað vill maður fara í hvern einasta leik, hvort sem það er æfingaleikur eða í einhvers konar móti og ná í úrslit. Við verðum klárlega klárir þegar mótið byrjar og ætlum okkur góða hluti," sagði Haukur.
Er klárt að Valur stefnir á Íslandsmeistaratitil?
„Valur setur þau markmið að stefna á að berjast um alla þá titla sem eru í boði og það er engin undantekning á þessu tímabili."
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan.






















