Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 12. maí 2023 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Toney á bara eftir að verða betri og betri"
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA

Thomas Frank, knattspyrnustjóri Brentford, ræddi um sóknarmanninn Ivan Toney sem hefur verið orðaður við ýmis stórlið í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu. 


Toney er algjör lykilmaður í liði Brentford og hafa stórlið enska boltans áhuga á honum þrátt fyrir að hann megi búast við löngu leikbanni vegna brots á veðmálareglum úrvalsdeildarinnar.

Toney, sem er 27 ára gamall, er kominn með 20 mörk í 33 leikjum á úrvalsdeildartímabilinu en hann lék í C-deildinni þar til fyrir tveimur árum. Brentford fékk sóknarmanninn frá Peterborough sumarið 2020 og hefur hann verið óstöðvandi síðan.

„Ég elska Ivan og mér finnst það sem hann hefur afrekað hjá félaginu vera algjörlega magnað. Ég er ótrúlega heppinn að hafa hann í leikmannahópinum,"  sagði Frank.

„Hann var frábær í C-deildinni og svo var hann stórkostlegur með okkur í Championship þegar við komumst upp um deild. Hann skoraði 12 mörk á sínu fyrsta úrvalsdeildartímabili og núna er hann kominn með 20. Hvenær hættir hann að bæta sig?

„Ég veit að hann er ekki 22 ára gamall en ef þú horfir á bestu sóknarmenn heims þá virðast þeir bara verða betri með aldrinum, eins og til dæmis Benzema og Lewandowski. Ivan Toney á bara eftir að verða betri og betri."


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner