Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 11:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Forseti Sporting tjáir sig - Sambandið við Gyökeres ónýtt
Viktor Gyökeres.
Viktor Gyökeres.
Mynd: EPA
Gyökeres fagnar marki með Sporting.
Gyökeres fagnar marki með Sporting.
Mynd: EPA
Frederico Varandas, forseti Sporting í Portúgal, segist aldrei hafa lofað Viktor Gyökeres því að hann yrði seldur fyrir 70 milljónir evra í sumar.

Það komu fréttir um það í gær að Gyökeres væri bálreiður út í Sporting þar sem hann taldi sig vera með samkomulag við félagið um að það myndi leyfa sér að fara fyrir 70 milljónir evra, en félagið ætlaði ekki að standa við það.

Í samningi sænska framherjans er riftunarákvæði upp á 100 milljónir evra en hann taldi sig hafa gert samkomulag við félagið um að vera áfram á síðasta ári gegn því að hann fengi að fara ef 70 milljón evra tilboð kæmi í sumar.

Núna er sagt að Sporting hafi hækkað verðmiðann á þessum eftirsótta framherja og Gyökeres sé ekki sáttur við það. Forseti félagsins hefur tjáð sig um málið.

„Ég get fullvissað ykkur um það að Viktor Gyökeres fer ekki fyrir 70 milljónir evra því ég lofaði honum því aldrei," sagði Varandas, forseti Sporting.

„Leikurinn sem umboðsmaður hans er að spila er bara að gera hlutina verri."

Samkvæmt Record í Portúgal hefur Gyökeres tjáð Sporting það að hann muni aldrei aftur spila fyrir félagið og er samband hans við félagið ónýtt.

Man Utd hefur hafið viðræður við Sporting um kaup á þessari 27 ára markavél. Gyökeres hefur skorað 97 mörk í 102 leikjum fyrir Sporting. Hann er einnig á óskalista Arsenal.
Athugasemdir
banner