Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 13. maí 2023 13:10
Matthías Freyr Matthíasson
Byrjunarlið Stjörnunnar og ÍBV: Emil Atlason á bekknum hjá Stjörnunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan mætir ÍBV í sjöundu umferð Bestu deildar karla kl. 14:00 á Samsungvellinum í Garðabæ. Stjarnan er með nýjan þjálfara eftir að Ágúst Þór Gylfason var látinn fara og tók Jökull Elísabetarson við.


Lestu um leikinn: Stjarnan 4 -  0 ÍBV

Stjarnan tapaði fyrir Fram í síðasta leik 2 - 1 og gerir Jökull fjórar breytingar á liði sínu. Heiðar Ægisson er ekki í hóp, Sindri Þór Ingimarsson, Jóhann Árni og Hilmar Árni setjast á bekkinn. Inn í liðið koma þeir Daníel Laxdal, Kjartan Már Kjartansson, Róbert Frosti Þorkelsson og Guðmundur Baldvin Nökkvason. Athygli  vekur á bekknum hjá Stjörnunni er Emil Atlason og Joey Gibbs. En Emil meiddist illa í fyrra eftir að hafa byrjað mótið mjög vel.

Hermann Hreiðarsson gerir engar breytingar á liði sínu frá tapinu á móti Vikingum.


Byrjunarlið Stjarnan:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
0. Björn Berg Bryde
0. Guðmundur Kristjánsson
7. Ísak Andri Sigurgeirsson
7. Eggert Aron Guðmundsson
9. Daníel Laxdal
11. Adolf Daði Birgisson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
30. Kjartan Már Kjartansson
32. Örvar Logi Örvarsson
80. Róbert Frosti Þorkelsson

Byrjunarlið ÍBV:
12. Guy Smit (m)
3. Felix Örn Friðriksson
9. Sverrir Páll Hjaltested
10. Filip Valencic
13. Dwayne Atkinson
16. Tómas Bent Magnússon
22. Oliver Heiðarsson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
26. Richard King
42. Elvis Bwomono
Athugasemdir
banner
banner
banner