Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. maí 2023 16:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Daníel Ingi á leið til Nordsjælland
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Ingi Jóhannesson er á leið til Nordsjælland í Danmörku en hann var þar á reynslu í síðasta mánuði.


Þessi sextán ára gamli Skagamaður er vel liðinn í Danmörku en hann hefur farið nokkrum sinnum til FCK þar sem bróðir hans, Ísak Bergmann og annar Skagamaður, Hákon Arnar spila.

Aðallið Nordsjælland er með eins stigs forystu á FCK í efstu deildinni í Danmörku þegar fjórar umferðir eru eftir.

Daníel lék á síðasta ári sína fyrstu leiki með U17 landsliðinu og í vetur kom hann við sögu í fimm leikjum með ÍA í Lengjubikarnum, og skoraði eitt mark.


Athugasemdir
banner