Alonso mikill aðdáandi Zubimendi - Funda í þriðja sinn um Fernandes - Ten Hag að taka við Leverkusen?
Óskar Hrafn: Þegar tveir strengir slitna tekur tíma að ná aftur takti við hljómsveitina
Rúnar vildi fá víti: Dómarinn á að sjá þetta betur en ég
Jökull: Enginn fór og henti kuðung í sturtubotninn
Þorri Mar þakklátur Stjörnunni - „Sýnir að það sé ekkert okkar á milli"
Láki: Það var reiðarslag fyrir okkur
Valor fékk að velja undir lok gluggans: Gott að sjá vini mína aftur
Jón Þór: Töpum á öllum sviðum leiksins og ég á enga útskýringu á því
Sá yngsti í sögunni: Fór beint heim, hringdi í alla og lét þau vita
Birkir mjög sáttur á Hlíðarenda: Eignuðumst barn og konan vildi koma suður
Túfa: Sást í augunum á mönnum að menn vildu svara fyrir sig
Lúkas Logi: Þetta er ekkert flókið
Gunnar Már: Jöfnunarmarkið var 100% brot
Halli Hróðmars: Þetta var flókinn dagur
Gunnar Heiðar: Erum á góðri leið með þetta lið
Alli Jói: Ógeðslega lengi út úr rútunni
Aron Snær: Pirrandi að við erum búnir að fá okkur tvö skítamörk
Davíð Smári hrósaði Fatai í hástert - „Gjörsamlega stórkostlegur"
Kallar eftir virðingu frá dómurum - „Vonandi kemur VAR í íslenska boltann sem fyrst"
Bjarni Jó: Blessaður vertu ég er búinn að vera í þessu í tæp 40 ár
Pablo Aguilera: Vissulega kalt fyrir mig komandi frá Spáni
   lau 13. maí 2023 16:35
Matthías Freyr Matthíasson
Jökull: Fannst við geta unnið 5 -0 og þá vill maður 5-0
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er mjög ánægður, stórt fyrir okkur og margt rosalega jákvætt og frábært að halda hreinu í fyrsta sinn í sumar og töluvert fleira fólk sem ég átti von á. Frábært að geta gefið þeim eitthvað til að vera ánægt með líka, fólkið okkar sem er búið að styðja okkur rosalega vel í öllum leikjunum þrátt fyrir dapurt gengi sagði kampakátur Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar eftir góðan 4 - 0 sigur á ÍBV í hans fyrsta leik sem aðalþjálfari.


Lestu um leikinn: Stjarnan 4 -  0 ÍBV

Já við sáum ákefð frá fyrstu mínútu og héldum því út leikinn og fannst við gera það vel og eftir því sem leið á leikinn vildum við bara meira og slökuðum ekkert á.

Mér fannst ÍBV ógna lítið þegar við vorum í shape-inu okkar og okkur leið vel þó svo þeir væru með boltann í fyrri hálfleik en þegar staðan er eitt núll að þá getur allt gerst.

Það var fjórum sinnum dæmt rangstæða á Stjörnunni í leiknum. Hvað finnst þér um það?

Ég er ekki búinn að sjá þetta. Ég er alveg spenntur að sjá hversu margt var rétt og hvort eitthvað hefði átt að standa en skiptir engu máli. Mér fannst við geta unnið 5 - 0 og þá vill maður vinna 5 - 0.

Nánar er rætt við Jökul í sjónvarpinu hér að ofan.


Athugasemdir
banner