Fyrirliði Chelsea, Reece James, er meiddur, og ekki í fyrsta sinn á sínum ferli. Hann meiddist aftan í læri fyrir um mánuði síðan og er fjarri góðu gamni.
Mauricio Pochettino, stjóri Chelsea, var spurður út í James á fréttamannafundi í dag.
Mauricio Pochettino, stjóri Chelsea, var spurður út í James á fréttamannafundi í dag.
„Hann er í endurkomuferli og það gengur vel, ég veit ekki hvort hann sé nálægt því að snúa til baka eða ekki. Við skoðum hann á hverjum degi og metum stöðuna og hann er byrjaður að gera hluti með bolta á vellinum."
„Hann þráir að hjálpa liðinu. Vonandi getur hann gert það fyrir næsta landsleikjahlé," sagði Pochettino.
Framundan hjá Chelsea er leikur gegn Bournemouth á morgun. Pochettino talaði um það á fundinum í dag að Chelsea yrði í Evrópu á næsta tímabili.
„Það er betra fyrir okkur (að vera ekki í Evrópu á þessu tímabili). Við erum með lítinn hóp þessa stundina vegna meiðsla. Það er mikilvægt að við fáum menn til baka og verðum samkeppnishæfir. Chelsea er vant því að vera í Meistaradeildinni en það er ekki í mínum höndum að breyta þeirri staðreynd núna. Það er klárt að við verðum í Evrópukeppni á næsta tímabili."
Athugasemdir