„Þetta er bara skandall. Þetta er bara skandall hjá okkur að nýta ekki þessi færi," sagði Alfreð Elías, þjálfari Selfoss, eftir tap sinna stelpna gegn Fylki í Pepsi Max-deildinni í dag.
Fylkir skoraði sigurmarkið í uppbótartíma leiksins.
Fylkir skoraði sigurmarkið í uppbótartíma leiksins.
„Þetta var mjög góður leikur hjá okkur, þetta er bara rán. Maður er bara orðlaus yfir því að hafa ekki skorað. Við fáum urmul af færum, frábær horn, bara skandall að nýta þetta ekki."
„Við þurfum bara að líta í eigin barm og leikmenn inni á vellinum þurfa að gera hlutina betur fyrir framan markið.".
Aðspurður segist Alfreð ekki vera svekktur út í sínar stelpur heldur meira vonsvikinn.
„Ekkert svekktur nei, bara vonsvikinn. Við lögðum mjög mikið í þennan leik. Ég veit ekki. Við áttum að skora allavega eitt, allavega tvö, allavega þrjú."
Selfyssingar ætluðu sér stóra hluti fyrir sumarið en Alfreð segir að tímabilið hingað til séu hrein og klár vonbrigði.
„Þetta ár 2020 hefur ekki verið nógu gott í deildinni. Við unnum bikar í fyrsta leik sumarsins og það er eini bikiarinn sem við höfum unnið. Við erum ekki að fara að verða Íslandsmeistarar. Ég held að það sé alveg ljóst."
Athugasemdir




