Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 18. febrúar 2023 12:50
Aksentije Milisic
Watkins kom Villa í forystu gegn Arsenal - Saka jafnaði
Mynd: Getty Images

Þessa stundina eigast við Aston Villa og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni og voru heimamenn ekki lengi að komast yfir.


Arsenal hefur verið að gefa eftir í síðustu leikjum en liðið missti toppsætið í hendur Manchester City í miðri viku.

Leikurinn í dag byrjaði ekki vel fyrir Skytturnar en Unai Emery, stjóri Aston Villa, er þarna að mæta sínu fyrrum félagi.

Strax á fimmtu mínútu leiksins fór boltinn í netið og var það Ollie Watkins sem skoraði snyrtilegt mark.

Matty Cash vann þá boltann af Oleksandr Zinchenko og átti fína sendingu á Watkins. Sóknarmaðurinn rölti þá framhjá William Saliba áður en hann þrumaði knettinum í fjærhornið.

Um tíu mínútum síðar jafnaði Bukayo Saka metin með smekklegu skoti eftir að Tyrone Mings skallaði knöttinn út í teiginn. Staðan er því 1-1 þegar þetta er skrifað.

Sjáðu markið hjá Watkins hér.
Sjáðu markið hjá Saka hér.


Athugasemdir
banner
banner