Stjarnan tryggði sér sigur í Þungavigtarbikarnum þar sem þeir lögðu FH að velli í úrslitaleiknum í kvöld.
Stjarnan steinlá gegn KR í undanúrslitum Lengjubikarsins á dögunum og hafa ákveðnar áhyggjuraddir vaknað upp eftir þau úrslit. En í kvöld gerðu Stjörnumenn vel.
Bæði lið áttu sín augnablik í fyrri hálfleiknum og fór Kjartan Kári Halldórsson, leikmaður FH, mikinn. Það voru þó engin mörk komin í leikinn þegar liðin gengu til búningsklefa.
Eftir 20 mínútur í seinni hálfleik var ísinn brotinn og þar var að verki Jóhann Árni Gunnarsson. Í lokin bætti Benedikt Warén svo við marki eftir góða sókn og sigur Stjörnunnar tryggður.
Lokatölur 2-0 og Stjarnan tekur þennan bikar í ár.
Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leiknum.
Athugasemdir



