Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   þri 18. ágúst 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Gummi Tyrfings: Heiður að finna áhuga og traust frá ÍA
Guðmundur Tyrfingsson og Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA.
Guðmundur Tyrfingsson og Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA.
Mynd: ÍA
ÍA fékk í gær kantmanninn Guðmund Tyrfingsson til liðs við sig frá Selfossi en hann gerði tveggja ára samnig við félagið.

Hinn 17 ára gamli Guðmundur hefur nú þegar spilað 32 leiki með meistaraflokki Selfyssinga þrátt fyrir ungan aldur. Hann er í viðtali hjá sunnlenska.is um félagaskiptin.

„Mér líst gríðarlega vel á ÍA, þetta er flottur klúbbur með mikinn metnað og þeir eru óhræddir við að gefa ungum leikmönnum tækifæri. Hópurinn er sterkur og flottur og þjálfarateymið einnig og því tel ég þetta vera rétta skrefið til að taka fyrir minn feril,“ segir Guðmundur í samtali við sunnlenska.is.

„Ég er gríðarlega spenntur fyrir að fá tækifæri til að vinna mig inn í liðið og spila í efstu deild og bæta mig sem leikmann og þróa minn leik frekar og mun leggja allt í að hjálpa ÍA að ná sínum markmiðum. Það er mikill heiður að finna áhuga og traust frá eins flottu félagi og ÍA og vill ég þakka þeim fyrir það,“ bætir hann við.

Í viðtalinu segist Guðmundur þakklátur fyrir tækifærin sem hann hefur fengið hjá uppeldisfélagi sínu Selfossi og hann vonar að liðið komist upp úr 2. deildinni í ár.

„Ég óska félögum mínum í liðinu góðs gengis og hef fulla trú á að þeir muni klára verkefnið og fara upp um deild," sagði Guðmundur við sunnlenska.is.

Smelltu hér til að sjá viðtalið í heild sinni
Athugasemdir
banner
banner