Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   mið 18. október 2023 10:10
Elvar Geir Magnússon
Gullskór og hanskar veittir eftir helgi - Þessi hljóta verðlaunin
Mynd: ÍTF
Líkt og á síðasta ári veitir Besta deildin í samstarfi við Nike á Íslandi verðlaun fyrir það fótboltafólk sem skaraði framúr á nýliðnu keppnistímabili.

Veitt eru verðlaun fyrir markahæsta- og stoðsendingahæsta leikmann ásamt verðlaunum fyrir Besta markmann, sá sem hefur haldið oftast hreinu.

Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í Boltabúð H verslunar á mánudaginn (23 október) klukkan 12:00. Listi yfir þá leikmenn sem hljóta verðlaunin í ár má sjá hér að neðan.

Besta deild kvenna
Gullskór: Bryndís Arna Níelsdóttir (Valur)
Stoðsendingahæst: Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Gullhanski: Telma Ívarsdóttir (Breiðablik)

Besta deild karla
Gullskór: Emil Atlason (Stjarnan)
Stoðsendingahæstur: Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Gullhanski: Ingvar Jónsson (Víkingur)

   09.10.2023 14:00
Þessir urðu markahæstir í efstu deildum - Emil tók gullskóinn

Slapp
banner