Heimild: Þór
Smári Signar Viðarsson hefur undirritað sinn fyrsta samning við Þór. Samningurinn gildir út 2028.
Þessi 15 ára gamli miðjumaður (2010) hefur verið að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki undanfarna mánuði. Hann var í leikmannahópnum gegn ÍA um liðna helgi.
Smári hefur þá leikið átta landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Við óskum Smára til hamingju með fyrsta samninginn og hlökkum til að fylgjast áfram með honum í Þórsbúningnum," segir í tilkynningu Þórs.