Líklegra að Nunez verði seldur frá Liverpool - Wharton einn af þeim sem eru orðaðir við Man Utd - City á leið í endurbyggingu - Newcastle til í...
   fös 21. febrúar 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Eitt stig sem skilur þrjú efstu liðin að
Mynd: EPA
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Mynd: EPA
Titilbaráttan í La Liga, efstu deild spænska deildakerfisins, hefur sjaldan verið jafn spennandi og hún er í ár þar sem aðeins eitt stig skilur þrjú efstu lið deildarinnar að.

25. umferð tímabilsins fer fram um helgina og hefst á heimaleik Celta Vigo gegn Osasuna í kvöld. Gestirnir í liði Osasuna geta komið sér upp í Evrópusæti með sigri og er Celta þremur stigum þar á eftir.

Á laugardag eru áhugaverðir leikir þar sem Rayo Vallecano spilar við Villarreal í Evrópubaráttunni áður en Valencia tekur á móti Atlético Madrid, sem situr í þriðja sæti sem stendur.

Að þeim leik loknum kíkir topplið Barcelona í ferðalag til sólstrandanna í Kanaríeyjum, á útivelli gegn fallbaráttuliði Las Palmas.

Athletic Bilbao situr í fjórða sæti deildarinnar, aðeins sex stigum á eftir toppliði Barcelona, og getur aukið pressuna á toppliðin með sigri á heimavelli gegn Real Valladolid.

Ríkjandi Spánarmeistarar Real Madrid taka svo á móti Girona í nágrannaslag áður en Antony og félagar í Real Betis fá tækifæri til að bæta stöðu sína í Evrópubaráttunni á útivelli gegn Getafe.

Orri Steinn Óskarsson og félagar í liði Real Sociedad eiga heimaleik við Leganés á sunnudagskvöldið en lokaleikur helgarinnar fer fram á mánudagskvöldið. Sevilla tekur þar á móti Mallorca sem er að reynast eitt af spútnik liðum tímabilsins.

Föstudagur
20:00 Celta - Osasuna

Laugardagur
13:00 Alaves - Espanyol
15:15 Vallecano - Villarreal
17:30 Valencia - Atletico Madrid
20:00 Las Palmas - Barcelona

Sunnudagur
13:00 Athletic - Valladolid
15:15 Real Madrid - Girona
17:30 Getafe - Betis
20:00 Real Sociedad - Leganes

Mánudagur
20:00 Sevilla - Mallorca
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 24 15 6 3 52 23 +29 51
2 Barcelona 24 16 3 5 65 25 +40 51
3 Atletico Madrid 24 14 8 2 39 16 +23 50
4 Athletic 24 12 9 3 37 21 +16 45
5 Villarreal 24 11 8 5 47 35 +12 41
6 Vallecano 24 9 8 7 27 25 +2 35
7 Mallorca 24 10 4 10 23 30 -7 34
8 Osasuna 25 7 11 7 29 34 -5 32
9 Betis 24 8 8 8 30 31 -1 32
10 Celta 25 9 5 11 36 38 -2 32
11 Sevilla 24 8 7 9 29 34 -5 31
12 Girona 24 9 4 11 32 35 -3 31
13 Real Sociedad 24 9 4 11 20 23 -3 31
14 Getafe 24 7 9 8 20 18 +2 30
15 Leganes 24 5 9 10 22 35 -13 24
16 Espanyol 24 6 6 12 23 36 -13 24
17 Valencia 24 5 8 11 25 38 -13 23
18 Las Palmas 24 6 5 13 29 41 -12 23
19 Alaves 24 5 7 12 28 38 -10 22
20 Valladolid 24 4 3 17 15 52 -37 15
Athugasemdir
banner
banner
banner