Sevilla 3 - 2 Inter
0-1 Romelu Lukaku ('5 , víti)
1-1 Luuk de Jong ('12 )
2-1 Luuk de Jong ('33 )
2-2 Diego Godin ('36 )
2-3 Romelu Lukaku ('74 , sjálfsmark)
0-1 Romelu Lukaku ('5 , víti)
1-1 Luuk de Jong ('12 )
2-1 Luuk de Jong ('33 )
2-2 Diego Godin ('36 )
2-3 Romelu Lukaku ('74 , sjálfsmark)
Sevilla er Evrópudeildarmeistari árið 2020 eftir leik við Inter Milan í úrslitum í kvöld en spilað var í Köln í Þýskalandi.
Sevilla hefur verið óstöðvandi í úrslitaleikjum Evrópudeildarinnar en liðið vann keppnina 2014, 2015, 2016 og nú 2020.
Leikur kvöldsins var mjög fjörugur en það tók Inter aðeins fimm mínútur að komast yfir af vítapunktinum.
Diego Carlos gerðist brotlegur innan teigs og nýtti Romelu Lukaku sér það til að koma þeim ítölsku yfir og gerði um leið sitt 34. mark á tímabilinu.
Forysta Inter entist í aðeins sjö mínútur en stuttu seinna jafnaði Hollendingurinn Luuk de Jong með góðum skalla af stuttu færi eftir fyrirgjöf Jesus Navas.
De Jong var svo aftur á ferðinni á 33. mínútu og skoraði þá sitt annað skallamark til að koma spænska liðinu yfir.
Þremur mínútum seinna jafnaði varnarmaðurinn Diego Godin metin fyrir Inter en hann stangaði þá inn fyrirgjöf Marcelo Brozovic úr aukaspyrnu. Staðan 2-2 í hálfleik.
Leikurinn var einnig fjörugur og spennandi í seinni hálfleik en þar var þó aðeins eitt mark skorað - Lukaku varð þá fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.
Carlos átti hjólhestaspyrnu að marki Inter sem Lukaku kom við og endaði knötturinn í netinu. Boltinn var á leið framhjá og markið því skráð sem sjálfsmark.
Inter reyndi og reyndi undir lok leiksins en inn vildi boltinn ekki og því Sevilla Evrópudeildarmeistari þetta árið.
Liðið er um leið það sigursælasta í sögu keppninnar og hefur unnið hana alls sex sinnum.
Athugasemdir


