Karlalið KR hefur sent inn formlega umsókn um að fá að vera í vinnusóttkví svo liðið geti hafið æfingar um helgina. KR er í sóttkví eftir að liðið kom heim úr Evrópuleik gegn Celtic aðfaranótt miðvikudags.
Næsti leikur KR á að vera gegn Val á miðvikudaginn en Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar, segir að liðið þurfi að fara að fá leyfi sem fyrst til að fara í vinnusóttkví ef leikurinn á að fara fram.
Eins og staðan er í dag fara KR-ingar í aðra skimun á mánudag og geta þá hafið æfingar á þriðjudaginn. Ef þeir fá leyfi til að vera í vinnusóttkví eða geta flýtt seinni skimun þá gæti liðið hafið æfingar um helgina og spilað á miðvikudag.
„Við fengum loksins skjal í dag sem heitir umsókn um vinnusóttkví. Við sóttum um og það er búið að staðfesta móttöku en ekki víst hvenær hægt verður að taka það til afgreiðslu," sagði Páll við Fótbolta.net.
„Við höfum óskað eftir að flýta seinni skimun sem plan B en ég hef ekki fengið svör við því ennþá. Í fréttunum í morgun kom fram að ríkisstjórnin fer í skimun á föstudegi og svo strax á mánudegi á meðan við förum á miðnætti á þriðjudegi og svo á mánudegi. Ef við fáum ekki niðurstöðu fljótt þá verður ekkert af þessum leik á miðvikudaginn."
Páll segir ljóst að leikurinn fari ekki fram á miðvikudag ef KR-ingar fái ekki að hefja æfingar um helgina.
Athugasemdir




