Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir það óljóst hvenær áhorfendur fái aftur að mæta á leiki í íslenska boltanum. Áhorfendabann hefur verið við gildi síðan boltinn byrjaði aftur að rúlla.
„Það er ekkert ljóst í þessum efnum en okkar vonir eru að þetta verði skoðað sem fyrst og að hægt verði að hleypa inn áhorfendum í næstu afléttingu," segir Klara.
„Það eru ekki við sem ráðum þessu heldur sóttvarnaryfirvöld en vonandi mun þetta vera tekið fyrir sem fyrst."
Núverandi samkomutakmarkanir gilda til 28. ágúst, föstudagsins í næstu viku.

Nú eru í gangi 100 manna samkomutakmarkanir á Íslandi en þær gilda þó ekki í íslenska boltanum þar sem áhorfendur eru bannaðir. Þórir Hákonarson, íþróttastjóri Þróttar, gagnrýnir þessar reglur á Twitter.
„Getur einhver útskýrt fyrir mér hvers vegna ekki mega vera amk 100 áhorfendur á fótboltaleikjum, í stúkum t.d. sem taka öllu jöfnu vel á annað þúsund manns í sæti? Anyone? Trúverðugleikinn er algerlega horfinn í þessu regluverki öllu saman," skrifaði Þórir.
Athugasemdir