Wolfsburg er komið í undanúrslit Meistaradeildar kvenna eftir afar sannfærandi sigur á Glasgow City í 8-liða úrslitunum í kvöld en leikið var á Spáni.
Wolfsburg er með eitt sterkasta kvennalið Evrópu og var í engum vandræðum með þær skosku og fór örugglega áfram.
Danska landsliðskonan Pernille Harder var öflug í kvöld og skoraði fjögur mörk í 9-1 sigri þýska liðsins. Athygli vekur að miðjumaðurinn Leanne Ross skoraði tvö sjálfsmörk fyrir lið Glasgow undir lok leiksins.
Það var meiri spenna í hinum leik kvöldsins í keppninni en þar áttust við spænsku félögin Atletico Madrid og Barcelona.
Aðeins eitt mark var skorað í þeim leik en það gerði Kheira Hamraoui fyrir Barcelona þegar níu mínútur voru eftir. Barcelona og Wolfsburg munu mætast í undanúrslitunum.
Tveir leikir eru á dagskrá á morgun en þá mætast Arsenal og PSG sem og Lyon og Bayern Munchen. Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði, leikur með Lyon.
Glasgow City 1-9 Wolfsburg
0-1 Pernille Harder(16')
0-2 Ingrid Engen(20')
0-3 Ingrid Engen(45')
0-4 Pernille Harder(45')
0-5 Pernille Harder(56')
1-5 Lauren Wade(63')
1-6 Felicitas Rauch(67')
1-7 Pernille Harder(72')
1-8 Leanne Ross(sjálfsmark, 80')
1-9 Leanne Ross(sjálfsmark, 95')
Atletico Madrid 0-1 Barcelona
0-1 Kheira Hamroui(81')
Athugasemdir


