Díaz á förum frá Liverpool - Newcastle fær markvörð Burnley - Man City ætlar að losa sig við reynda leikmenn
   lau 22. febrúar 2025 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Arsenal fær kjörið tækifæri til að saxa á forystu Liverpool
Mynd: EPA
Mikel Arteta og lærisveinar hans í Arsenal eiga góðan möguleika á því að koma sér betur inn í titilbaráttunni er liðið tekur á móti West Ham í 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Liverpool tapaði á dögunum stigum gegn Aston Villa á Villa Park, en er engu að síður með átta stiga forystu á toppnum.

Arsenal, sem er í öðru sæti, spilar við West Ham á Emirates og getur saxað forystuna niður í fimm stig. Það væri gríðarlega stórt fyrir Arsenal þar sem Liverpool heimsækir Englandsmeistara Manchester City á morgun og alls ekki öruggt að toppliðið taki öll stigin þaðan.

Everton og Manchester United eigast þá við á Goodison Park, en gengi United hefur verið afar slakt upp á síðkastið og liðið tapað tveimur leikjum í röð á meðan Everton er á flottu skriði undir David Moyes.

Fulham og Crystal Palace mæta í Lundúnaslag og þá spila nýliðar Ipswich Town við Tottenham. Botnlið Southampton mætir Brighton og þá munu Aston Villa og Chelsea eigast við í lokaleik dagsins.

Aston Villa hefur staðið sig vel undir Unai Emery en Chelsea, sem fór nokkuð vel af stað á tímabilinu hefur aðeins unnið þrjá af síðustu tíu deildarleikjum sínum.

Leikir dagsins:
12:30 Everton - Man Utd
15:00 Bournemouth - Wolves
15:00 Arsenal - West Ham
15:00 Fulham - Crystal Palace
15:00 Ipswich Town - Tottenham
15:00 Southampton - Brighton
17:30 Aston Villa - Chelsea
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 26 18 7 1 62 26 +36 61
2 Arsenal 26 15 9 2 51 22 +29 54
3 Nott. Forest 25 14 5 6 41 29 +12 47
4 Man City 25 13 5 7 52 35 +17 44
5 Bournemouth 26 12 8 6 44 29 +15 44
6 Chelsea 25 12 7 6 47 34 +13 43
7 Newcastle 25 12 5 8 42 33 +9 41
8 Fulham 26 10 10 6 38 33 +5 40
9 Aston Villa 26 10 9 7 37 40 -3 39
10 Brighton 26 9 11 6 38 38 0 38
11 Brentford 26 11 4 11 47 42 +5 37
12 Tottenham 26 9 4 13 49 37 +12 31
13 Crystal Palace 26 7 10 9 29 32 -3 31
14 Everton 26 7 10 9 29 33 -4 31
15 Man Utd 26 8 6 12 30 37 -7 30
16 West Ham 26 7 7 12 29 47 -18 28
17 Wolves 26 5 5 16 35 54 -19 20
18 Ipswich Town 26 3 9 14 23 50 -27 18
19 Leicester 26 4 5 17 25 59 -34 17
20 Southampton 26 2 4 20 19 57 -38 10
Athugasemdir
banner
banner