Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   sun 23. september 2018 16:45
Magnús Þór Jónsson
Ágúst: Höfum að einhverju að keppa
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Gylfason fór með sína menn í Breiðablik upp í Grafarvog, sótti þar sigur og í ljósi úrslita dagsins er ljóst að Blikar eiga séns á Íslandsmeistaratitli um næstu helgi þó mikið þurfi að gerast!

"Við stefndum að því fyrir þennan leik að taka þrjú stig og halda lífi í titilbaráttunni og það hefur snúist þannig að bæði Valur og Stjarnan töpuðu og við komnir í annað sætið.  Það lifir enn möguleikinn fyrir næstu helgi sem verður þá vonandi drama".

Lestu um leikinn: Fjölnir 0 -  2 Breiðablik

Fjölnismenn hófu leikinn nokkuð sterkt en eftir að Blikar skoruðu var sigur þeirra næsta öruggur.

"Þeir hefðu þurft góðan leik í dag til að vinna okkur og þeir börðust fyrir öllu fram á síðustu mínútu og settu aðeins á okkur en því miður fyrir þá tókst þeim það ekki.

Við ætluðum að gera atlögu að þessu móti og það er gaman að því að það er möguleiki í síðasta leik."


Ágúst var með sigrinum í dag að fella sína gömlu félaga.  Einhver orð í þeirra átt?

"Þeir munu koma sterkir til baka og taka þessa Inkassodeild í nefið, það held ég að sé nokkuð ljóst.  Það eru bara góðar kveðjur frá mér til Grafarvogsins og Fjölnismanna!"

Nánar er rætt við Ágúst í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir
banner