Louis van Gaal stýrði Manchester United frá 2014 til 2016 eftir að David Moyes mistókst að ná svipuðum árangri og forveri sinn, goðsögnin Sir Alex Ferguson.
Van Gaal vann enska bikarinn við stjórnvölinn hjá Man Utd en árangur liðsins þóttu þó ekki viðunandi og tók José Mourinho við stjórnartaumunum eftir tvö ár af Van Gaal.
Van Gaal er 73 ára gamall og virðist vera endanlega hættur í þjálfun eftir að hafa tekið við hollenska landsliðinu og gert mjög góða hluti með það 2021-22.
Hann var spurður á dögunum út í gengi Man Utd á síðustu árum, en félagið hefur fallið langt frá þeim stað sem það var á áður fyrr. Hann var spurður hvort hann teldi starf Rúben Amorim þjálfara vera erfitt.
„Mér finnst Man Utd ennþá vera viðskiptafélag frekar en fótboltafélag. Ég hef sagt þetta áður. Það er alltaf erfitt þegar þjálfarinn fær ekki að eiga lokaorð um hvaða leikmenn koma til félagsins eða fara burt," svaraði Van Gaal.
Van Gaal þekkir gríðarlega vel til í fótboltaheiminum eftir að hafa meðal annars þjálfað Ajax, Barcelona og FC Bayern á framúrskarandi ferli.
Athugasemdir