Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
   mán 24. júní 2013 21:29
Elvar Geir Magnússon
Björn Daníel: Vitlausir ef við myndum ekki hlusta á Heimi
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH vann 2-1 sigur gegn Fylki í Pepsi-deildinni í kvöld eftir að hafa verið undir í hálfleik. Björn Daníel Sverrisson skoraði sigurmarkið í leiknum.

Lestu um leikinn: FH 2 -  1 Fylkir

„Mér fannst við ekki góðir í fyrri hálfleik en spiluðum vel í seinni hálfleik og létum boltann ganga. Þegar við náum upp okkar spili þá fylgja því mörk," sagði Björn eftir leikinn.

Eftir síðasta leik vöktu ummæli Heimis Guðjónssonar mikla athygli en þar sagðist hann ekki hafa náð til leikmannahópsins. Hvernig brást leikmannahópurinn við þessum ummælum?

„Þetta var lítið rætt innan hópsins. Við værum helvíti vitlausir ef við myndum hætta að hlusta á Heimi þegar hann er búinn að skila inn fimm Íslandsmeistaratitlum og bikarmeistaratitli."

Björn Daníel er að skora nóg af skallamörkum þessa dagana.

„Ég veit ekki hvað er í gangi. Ég hef ekki verið sterkur í hornspyrnum en er greinilega orðinn svona hrikalega öflugur í teignum," sagði Björn Daníel en viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner