Engir varamannabekkir eru á Ballymena Showgrounds vellinum þar sem Ísland mætir Norður-Írlandi nú klukkan 18:00. Varamenn beggja liða munu því þurfa að tylla sér í stúkuna þar sem hefðbundin stúkusæti bíða leikmanna.
Ballymena Showgrounds völlurinn tekur alls 4100 manns í sæti og er heimavöllur Ballymena United, en liðið endaði í 3. sæti í Norður-írsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Lestu um leikinn: Norður-Írland 0 - 2 Ísland
Ballymena Showgrounds völlurinn er þó ekki hefðbundni leikvangur Norður-írska kvennalandsliðsins en liðið hefur leikið síðustu leiki sína á Inver Park, heimavelli Larne FC. En samkvæmt Norður-írskum blaðamönnum hefur kvennaliðið flakkað á milli leikvanga síðustu ár.
Leikurinn er fyrri leikur liðanna í umspili um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar. Sigur í einvíginu myndi tryggja Íslandi áframhaldandi sæti í A-deild og eykur möguleika liðsins á að ná á Heimsmeistaramótið í Brasilíu 2027.



