Það var þung brúnin á Ejub Purisevic, þjálfara Víking Ó. eftir 5-0 tap fyrir KA á Akureyrarvelli í kcöld. Lítið gekk upp hjá hans liði sem varð undir á öllum vígstöðum gegn KA liðinu.
Lestu um leikinn: KA 5 - 0 Víkingur Ó.
„Það er spurning sem ég er alls ekki klár í að svara núna. En KA vann góðan 5-0 sigur og ég óska þeim til hamingju með það.,” voru svör Ejub við spurningu um hvað eiginlega hefði farið úrskeðis hjá hans mönnum.
„Ég hef trú á að við höldum okkur í deildinni. Eina sem við getum gert eftir þessa síðustu tvo leiki er að endurskipuleggja okkur og undirbúa okkur fyrir næsta leik. Fyrir okkur eru allir leikir úrslitaleikir. Við reynum bara að finna 3 stig þar sem það er hægt. Við gerum okkar besta og sjáum til hvort það dugar eða ekki,” sagði Ejub um hvað væri framundan en Víkingur Ó. situr í 10.sæti, 3 stigum frá fallsæti en með verri markatölu en ÍBV sem situr í 11.sæti.
Þetta ásamt umræðu um meiðslalista Víkinga má sjá í myndbandinu hér að ofan.
Athugasemdir