Aston Villa horfir til Sunderland - Real Madrid ætlar að fá Konate - Anderson ekki til sölu
   lau 27. september 2025 10:31
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Brentford og Man Utd: Cunha, Mbeumo og Sesko byrja
Matheus Cunha er í byrjunarliði United
Matheus Cunha er í byrjunarliði United
Mynd: EPA
Brentford og Manchester United eigast við í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á samfélagsvellinum í Lundúnum klukkan 11:30 í dag.

Stóru félögin á Englandi úrbeinuðu Brentford í sumarglugganum og byrjun liðsins í deildinni svolítið verið eftir því.

Liðið er aðeins með fjögur stig eftir fimm leiki á meðan Man Utd er með sjö stig.

Bryan Mbeumo, sem gekk einmitt í raðir United frá Brentford í sumar, er í byrjunarliði gestanna. Altay Bayindir heldur sæti sínu í markinu. Matheus Cunha, sem hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu, byrjar einnig ásamt Benjamin Sesko.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Cunha, Mbeumo og Sesko byrja, en allir komu til United í sumar.

Diogo Dalot kemur inn fyrir meiddan Noussair Mazraoui og þá kemur Manuel Ugarte inn fyrir Casemiro sem tekur út leikbann.

Aaron Hickey og Dango Ouattara koma inn í byrjunarlið Brentford, en landsliðsmaðurinn Hákon Rafn Valdimarsson er áfram á bekknum.

Brentford: Kelleher, Kayode, Van den Berg, Collins, Hickey, Henderson, Yarmoliuk, Damsgaard, Ouattara, Schade, Thiago

Man Utd: Bayindir, De Ligt, Maguire, Shaw, Dalot, Fernandes, Ugarte, Dorgu, Mbeumo, Sesko, Cunha
Athugasemdir
banner
banner