Miðjumaðurinn Antoni Milambo sleit krossband í leik með U21 landsliði Hollands og spilar ekki meira á tímabilinu.
Þessi tvítugi leikmaður var keyptur til Brentford frá Feyenoord á 16 milljónir punda í sumar og náði aðeins þremur leikjum með enska liðinu fyrir meiðslin; einum í úrvalsdeildinni og tveimur í deildabikarnum.

Milambo er á leið í aðgerð og svo langt endurhæfingarferli.
Milambo átti flott tímabil með Feyenoord á síðasta tímabili, skoraði sjö mörk og átti sjö stoðsendingar í 42 leikjum. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir Brentford gegn Nottingham Forest í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar og hefur síðan spilað gegn Bournemouth og Aston Villa í deildabikarnum.
Athugasemdir