Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, var að vonum svekktur með 2-1 tap sinna manna gegn FH í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. Þetta var fyrsta tap Skagamanna í sumar.
„Það er náttúrulega óþolandi að tapa fótboltaleikjum og það er ekki eitthvað sem að við ætlum að fara að venja okkur á. Þetta var ansi erfiður leikur í dag og FH-ingar eru með frábært lið. Við áttum fín tækifæri í fyrri hálfleiknum og ég hefði viljað klárað fleiri færi á markið." sagði Jói Kalli eftir leik.

Lestu um leikinn: FH 2 - 1 ÍA
Jóhannes Karl lætur vel í sér heyra á hliðarlínunni og fékk hann til að mynda gult spjald í dag fyrir mótmæli.
„Það sem að ég er óánægður með er að þeir brjóta tvisvar til þrisvar á markmanni okkar þegar að hann er kominn með boltann í hendurnar með það fyrir augum að stoppa sóknir og það á að vera gult spjald. Það er ágætt að vekja athygli á þessu hér því að lið eru farin að gera þetta vísvitandi og sleppa við gult spjald." sagði Jóhannes um gula spjaldið sem að hann fékk.
Skagamenn minnkuðu muninn í 2-1 þegar að lítið var eftir af leiknum og voru meira með boltann undir lok leiks en náðu ekki að setja inn jöfnunarmarkið.
„Við gáfumst ekki upp og sýndum karakter. Við vorum svekktir að fá á okkur fyrsta markið eins og við fengum það á okkur en það er bara eins og það er. Við ætluðum okkur að jafna en það heppnaðist ekki í dag." sagði Jói Kalli.
Nánar er rætt við Jóa Kalla í spilaranum að ofan.
Athugasemdir