Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
   sun 30. júní 2013 21:29
Arnar Daði Arnarsson
Óli Kristjáns.: Við ætlum okkur stóra hluti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Helgi Kristjánsson, þjálfari Blika var ánægður með spilamennsku síns liðs í seinni hálfleik gegn Fram í kvöld en langt í frá að vera ánægður með fyrri hálfleikinn. Niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Lestu um leikinn: Fram 1 -  1 Breiðablik

,,Eins og fyrri hálfleikurinn spilaðist þá ætti ég að vera sáttur með jafntefli. Svo spilast seinni hálfleikurinn og þá hefði ég eðlilega fyrst að Fram náði ekki að refsa okkur meira eftir fyrri hálfleikinn, viljað fara með þrjú stig héðan. Þetta er ekki spurning hvort ég sé sáttur en ég að sætta mig við þetta einhverntímann í kvöld," sagði Ólafur Helgi sem var óánægður með spilamennsku Blika í heild sinni í fyrri hálfleik.

Breiðablik gaf það fram fyrir tímabilið að þeir ætluðu sér að standa uppi sem sigurvegarar í lok sumars, og það markmið stendur enn þó þeir séu orðnir átta stigum á eftir KR.

,,Við ætlum okkur stóra hluti í sumar og við verðum að spila betur en þetta," sagði Óli Kristjáns.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner