Hinn fertugi Lukas Podolski er ekki á þeim buxunum að leggja skóna á hilluna.
Þessi fyrrum leikmaður Arsenal og þýska landsliðsins gekk til liðs við Gornik Zabrze árið 2021. Hann hefur ákveðið að framlengja samning sinn við félagið út tímabilið 2026. Podolski er fæddur í Póllandi.

„Gornik og þetta svæði er mitt heimili. Ég ólst hérna upp og er héðan. Ég mun enda ferilinn minn hér. Þetta var erfið ákvörðun fyrir mig en á ákveðnum tímapunkti verður maður að segja stopp, bara ekki núna," sagði Podolski.
Podolski lék á sínum tíma 82 leiki og skoraði 31 mark fyrir Arsenal. Hann hafði áður verið hjá Bayern og lék 106 leiki og skoraði 26 mörk. Þá lék hann 130 landsleiki fyrir hönd Þýskalands og skoraði 49 mörk. Þá var hann hluti af liðinu sem varð heimsmeistari árið 2014.
Athugasemdir