Ægismenn eru komnir á toppinn í 2. deild karla eftir að hafa unnið góðan 2-0 sigur á Dalvík/Reyni í dag.
Við ætlum að byrja á 4-1 sigri Víkings Ólafsvíkur á Kára í Akraneshöllinni en sá leikur var í sérstakri úrslitaþjónustu hér á Fótbolta.net.
Luis Alberto Diez Ocerin kom Ólafsvíkingum í tveggja marka forystu í fyrri hálfleiknum.
Fyrra markið gerði hann á 23. mínútu. Gabríel Þór Þórðarson kom með fyrirgjöfina á Ingvar Frey Þorsteinsson sem lagði hann fyrir Luis sem stýrði boltanum hnitmiðað í bláhornið og seinna marki gerði hann með stórglæsilegu skoti úr aukaspyrnu.
Luke Williams bætti við þriðja markinu með þéttingsföstu skoti fyrir utan teig á 52. mínútu áður en Sigurður Hrannar Þorsteinsson minnkaði muninn eftir skallasendingu Sigurjóns Loga Bergþórssonar.
Spánverjinn Ivan Lopez Cristobal gerði út um leikinn fyrir Ólafsvíkinga með góðu skallamarki tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok og 4-1 sigur Ólafsvíkinga staðreynd.
Ólsarar eru í 6. sæti með 13 stig en Kári í 10. sæti með 9 stig.
Kári 1 - 4 Víkingur Ó.
0-1 Luis Alberto Diez Ocerin ('23 )
0-2 Luis Alberto Diez Ocerin ('40 )
0-3 Luke Williams ('52 )
1-3 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('65 )
1-4 Ivan Lopez Cristobal ('78 )
Lestu um leikinn
Dalvík/Reynir 0 - 2 Ægir
0-1 Baptiste Gateau ('83 )
0-2 Aron Daníel Arnalds ('90 )
Ægismenn komu sér á toppinn með 2-0 sigri á Dalvík/Reyni fyrir norðan.
Gestirnir skoruðu bæði mörk sín á síðustu tíu mínútum leiksins, en Baptiste Gateau skoraði fyrra markið á 83. mínútu og bætti varamaðurinn Aron Daníel Arnalds við öðru þegar lítið var eftir af leiknum.
Ægir er á toppnum með 23 stig eftir tíu leiki en Dalvík/Reynir áfram í 5. sæti með 16 stig.
Dalvík/Reynir Auðunn Ingi Valtýsson (m), Alejandro Zambrano Martin, Miguel Joao De Freitas Goncalves, Þröstur Mikael Jónasson (73'), Martim Fortuna Soares Sequeira Cardoso (56'), Borja Lopez Laguna (85'), Bjarmi Fannar Óskarsson (73'), Gunnlaugur Rafn Ingvarsson, Rúnar Helgi Björnsson, Áki Sölvason, Sævar Þór Fylkisson
Varamenn Hákon Atli Aðalsteinsson, Remi Marie Emeriau (56'), Sindri Sigurðarson (73'), Viktor Daði Sævaldsson (85'), Tómas Þórðarson, Aron Máni Sverrisson (73'), Hjörtur Freyr Ævarsson
Ægir Andri Þór Grétarsson (m), Stefan Dabetic, Ísak Aron Ómarsson (46'), Atli Rafn Guðbjartsson (90'), Jordan Adeyemo (90'), Dimitrije Cokic, Sigurður Óli Guðjónsson, Einar Breki Sverrisson, Benedikt Darri Gunnarsson, Baptiste Gateau, Bjarki Rúnar Jónínuson
Varamenn Anton Breki Viktorsson (90), Jón Jökull Þráinsson, Aron Daníel Arnalds (46), Ivan Rodrigo Moran Blanco (90), Aron Óskar Þorleifsson (m)
KFG 2 - 1 Kormákur/Hvöt
1-0 Adrían Baarregaard Valencia ('26 )
2-0 Djordje Biberdzic ('77 )
2-1 Hlib Horan ('78 )
KFG vann góðan 2-1 sigur á Kormáki/Hvöt á Samsung-vellinum í Garðabæ.
Adrian Baarregaard Valencia kom KFG á bragðið á 26. mínútu og stóðu leikar þannig fram að 77. mínútu er Djordje Biberdzic tvöfaldaði forystuna. Mínútu síðar minnkaði Hlib Horan muninn, en lengra komust gestirnir ekki og lokatölur því 2-1 heimamönnum í vil.
KFG er með 13 stig í 7. sæti en Kormákur/Hvöt í sætinu fyrir neðan með 12 stig.
KFG Guðmundur Rafn Ingason (m), Helgi Snær Agnarsson, Arnar Ingi Valgeirsson, Ólafur Viðar Sigurðsson (74'), Adrían Baarregaard Valencia, Bóas Heimisson (65'), Daníel Darri Þorkelsson, Benedikt Pálmason, Dagur Óli Grétarsson (62'), Djordje Biberdzic, Jökull Sveinsson
Varamenn Stefán Alex Ríkarðsson (74'), Atli Freyr Þorleifsson (65'), Magnús Andri Ólafsson (74'), Arnar Darri Þorleifsson, Adrían Nana Boateng (62'), Guðmundur Thor Ingason, Eyþór Örn Eyþórsson
Kormákur/Hvöt Simon Zupancic (m), Sigurður Pétur Stefánsson, Acai Nauset Elvira Rodriguez (47'), Papa Diounkou Tecagne, Kristinn Bjarni Andrason, Matheus Bettio Gotler (47'), Jón Gísli Stefánsson, Dominic Louis Furness (62'), Juan Carlos Dominguez Requena (53'), Marko Zivkovic, Jaheem Burke
Varamenn Ingvi Rafn Ingvarsson (47), Sigurður Bjarni Aadnegard (47), Hlib Horan (62), Arnór Ágúst Sindrason, Haukur Ingi Ólafsson (53), Stefán Freyr Jónsson
Víðir 1 - 2 KFA
0-1 Hrafn Guðmundsson
0-2 Heiðar Snær Ragnarsson
1-2 Dominic Lee Briggs
KFA sótti flottan 2-1 útisigur á Víði í Garði á Nesfisk-vellinum.
Hrafn Guðmundsson og Heiðar Snær Ragnarsson skoruðu mörk KFA, en það var Jawed Abd El Resak Boumeddane sem lagði upp bæði mörkin.
Dominic Lee Briggs tókst að minnka muninn fyrir Víði með öðru marki sínu í sumar.
KFA er í 9. sæti með 11 stig en Víðir í næst neðsta sæti með 8 stig.
Víðir Jón Garðar Arnarsson (m), Paolo Gratton, Alexis Alexandrenne, David Toro Jimenez, Uros Jemovic, Cristovao A. F. Da S. Martins, Dominic Lee Briggs, Cameron Michael Briggs, Róbert William G. Bagguley, Einar Örn Andrésson, Kristófer Snær Jóhannsson
Varamenn Ottó Helgason, Markús Máni Jónsson, Daniel Beneitez Fidalgo, Tómas Freyr Jónsson, Aron Örn Hákonarson, Þórir Guðmundsson, Eyþór Guðjónsson (m)
KFA Danny El-Hage (m), Heiðar Snær Ragnarsson, Geir Sigurbjörn Ómarsson, Eggert Gunnþór Jónsson, Imanol Vergara Gonzalez, Birkir Ingi Óskarsson, Marteinn Már Sverrisson, Þór Sigurjónsson, Patrekur Aron Grétarsson, Jawed Abd El Resak Boumeddane, Hrafn Guðmundsson
Varamenn Arkadiusz Jan Grzelak, Nikola Kristinn Stojanovic, Ólafur Bernharð Hallgrímsson, Adam Örn Guðmundsson, Unnar Ari Hansson, Javier Montserrat Munoz, Milan Jelovac (m)
Höttur/Huginn 2 - 2 Þróttur V.
0-1 Rúnar Ingi Eysteinsson ('37 )
1-1 Danilo Milenkovic ('74 )
2-1 Stefán Ómar Magnússon ('77 )
2-2 Hilmar Starri Hilmarsson ('90 )
Botnlið Hattar/Hugins náði þá að taka óvænt stig af Þrótti V er liðin gerðu 2-2 jafntefli á Fellavelli.
Rúnar Ingi Eysteinsson skoraði sjöunda deildarmark sitt á tímabilinu á 37. mínútu og sá til þess að Vogamenn færu með eins marks forystu inn í hálfleikinn.
Danilo Milenkovic jafnaði metin á 74. mínútu og þremur mínútum síðar skoraði Stefán Ómar Magnússon annað mark heimamanna, en Vogamenn gáfust ekki upp og náðu að bjarga stigi undir lok leiks með marki Hilmars Starra Hilmarssonar.
Vogamenn detta niður í 2. sæti deildarinnar með 22 stig, en Höttur/Huginn áfram á botninum með 6 stig.
Höttur/Huginn Gerard Tomas Iborra (m), André Musa Solórzano Abed, Eyþór Magnússon, Genis Arrastraria Caballe, Danilo Milenkovic, Þórhallur Ási Aðalsteinsson (90'), Bjarki Fannar Helgason (90'), Kristófer Páll Viðarsson (84'), Sæþór Ívan Viðarsson, Kristján Jakob Ásgrímsson, Árni Veigar Árnason (69')
Varamenn Sæbjörn Guðlaugsson (84'), Rafael Llop Caballe, Bjarki Nóel Brynjarsson (90'), Stefán Ómar Magnússon (69'), Ívar Logi Jóhannsson (90'), Kristófer Máni Sigurðsson, Brynjar Smári Ísleifsson (m)
Þróttur V. Jökull Blængsson (m), Ólafur Örn Eyjólfsson, Auðun Gauti Auðunsson, Hilmar Starri Hilmarsson, Jón Veigar Kristjánsson (90'), Jóhannes Karl Bárðarson, Eyþór Orri Ómarsson (65'), Ásgeir Marteinsson (65'), Rúnar Ingi Eysteinsson, Kostiantyn Pikul, Birgir Halldórsson
Varamenn Hreinn Ingi Örnólfsson (90), Þorgeir Ingvarsson, Anton Breki Óskarsson (65), Sigurður Agnar Br. Arnþórsson (65), Almar Máni Þórisson, Jón Kristinn Ingason, Rökkvi Rafn Agnesarson (m)
2. deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Ægir | 10 | 7 | 2 | 1 | 27 - 12 | +15 | 23 |
2. Þróttur V. | 10 | 7 | 1 | 2 | 17 - 9 | +8 | 22 |
3. Haukar | 9 | 5 | 2 | 2 | 15 - 12 | +3 | 17 |
4. Grótta | 9 | 4 | 4 | 1 | 17 - 12 | +5 | 16 |
5. Dalvík/Reynir | 10 | 5 | 1 | 4 | 14 - 11 | +3 | 16 |
6. Víkingur Ó. | 10 | 3 | 4 | 3 | 19 - 14 | +5 | 13 |
7. KFG | 10 | 4 | 1 | 5 | 16 - 18 | -2 | 13 |
8. Kormákur/Hvöt | 10 | 4 | 0 | 6 | 11 - 18 | -7 | 12 |
9. KFA | 10 | 3 | 2 | 5 | 22 - 20 | +2 | 11 |
10. Kári | 10 | 3 | 0 | 7 | 12 - 24 | -12 | 9 |
11. Víðir | 10 | 2 | 2 | 6 | 10 - 15 | -5 | 8 |
12. Höttur/Huginn | 10 | 1 | 3 | 6 | 11 - 26 | -15 | 6 |
Athugasemdir