Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 30. júní 2025 09:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grindavík nær samkomulagi við LASK
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Grindavík náð samkomulagi við austurríska félagið LASK í Linz um að það fái miðvörðinn unga Sölva Snæ Ásgeirsson á láni.

Lánssamningnum fylgir forkaupsréttur, LASK getur keypt Sölva á ákveðna upphæð.

Sölvi fór á reynslu til LASK í lok síðasta mánaðar og voru menn hjá austurríska félaginu greinilega spenntir fyrir unglingalandsliðsmanninum.

Sölvi Snær er fæddur 2008 og er í lykilhlutverki hjá Grindavík í Lengjudeildinni. Hann á að baki tólf leiki fyrir yngri landslið Íslands.

LASK endaði í 7. sæti austurrísku deildarinnar á liðnu tímabili og má búast við að Sölvi fari í varalið félagsins sem spilar í þriðju efstu deild.
Athugasemdir
banner
banner