Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 30. júní 2025 09:22
Elvar Geir Magnússon
Gittens og Pedro á leið í læknisskoðun hjá Chelsea
Gittens er á leið til Chelsea.
Gittens er á leið til Chelsea.
Mynd: EPA
Jamie Gittens og Joao Pedro eru báðir á leið í læknisskoðun hjá Chelsea.

Borussia Dortmund samþykkti 55 milljóna punda tilboð í vængmanninn tvítuga Gittens en hann hafði gert munnlegt samkomulag við Chelsea um sjö ára samning fyrr í þessum mánuði.

Í gær var greint frá því að Brighton hefði samþykkt 60 milljóna punda tilboð frá Chelsea í brasilíska sóknarleikmann Joao Pedro.

Pedro er á leið til Bandaríkjanna í læknisskoðun og gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Chelsea á föstudag, þegar liðið mætir Palmeiras í 8-liða úrslitum HM félagsliða.

Eins og oft áður hefur Chelsea verið duglegt á leikmannamarkaðnum. Félagið hefur sumar fengið til sín Liam Delap frá Ipswich, Estevao Willian frá Palmeiras, Dario Essugo frá Sporting og Mamadou Sarr frá Strasbourg.
Athugasemdir
banner