Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Stefnir á að vinna tvöfalt með Stjörnunni og blendnar tilfinningar að mæta Gylfa
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Caulker og Gylfi spiluðu saman hjá Tottenham og Swansea
Caulker og Gylfi spiluðu saman hjá Tottenham og Swansea
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Caulker þekkir einnig til Kwame Quee en þeir tveir hafa spilað saman með landsliði Síerra Leóne
Caulker þekkir einnig til Kwame Quee en þeir tveir hafa spilað saman með landsliði Síerra Leóne
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýi Stjörnumaðurinn Steven Caulker segir það ekki vera glórulaust markmið að stefna á að vinna tvöfalt með Stjörnunni á þessu tímabili.

Caulker, sem skrifaði á dögunum undir samning við Stjörnuna, verður leikfær með liðinu 17. júlí þegar glugginn opnar og er kominn til þess að þróa þjálfaraferil sinn en líka til að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum á vellinum.

Stjörnumenn eru komnir í undanúrslit Mjólkurbikarsins og er aðeins sex stigum frá toppnum eftir þrettán umferðir. Hann segir það því ekki vera galið að stefna á Íslands- og bikarmeistaratitilinn í ár.

„Af hverju ekki? Við erum ekki langt frá toppliðunum og ég er metnaðarfull manneskja. Einn af fyrrum liðsfélögum mínum er hér, Gylfi Þór Sigurðsson, þannig við verðum í samkeppni um hver nær í titilinn. Þetta verður erfitt verkefni því það eru mörg góð lið hér á Íslandi og góðir leikmenn. Við sáum það í gær en við erum með mjög gott lið og það er bara að hafa trú á því við séum með lið sem getur unnið deildina,“ sagði Caulker við Fótbolta.net.

Caulker og Gylfi Þór spiluðu saman hjá Tottenham Hotspur og Swansea og þekkjast því nokkuð vel, en hann lék einnig með Aroni Einari Gunnarssyni hjá Cardiff.

„Ég veit hversu góður leikmaður Gylfi er og hlakka til að mæta honum, en á sama tíma hlakka ég ekki til þess. Hann er ótrúlega hæfileikaríkur en það verður gaman að hitta hann aftur og svo þekki ég líka Aron Einar Gunnarsson eftir tíma okkar saman hjá Cardiff þannig maður þekkir aðeins til Íslendinga og líkar vel við hvernig þið berið ykkur sem spilaði stóra rullu í að ég ákvað að koma hingað.“

Íslandstengingin stoppar ekki á Aroni og Gylfa því Caulker hefur einnig leikið landsleiki með Kwame Quee, leikmanni Víkings Ólafsvíkur, hjá Síerra Leóne. Caulker er fæddur og uppalinn á Englandi, en afi hans er frá Síerra Leóne og gat því Caulker skipt um landslið.

Hann segist ekki hafa átt spjall við þá um að koma til Íslands.

„Þú minntir mig bara á það! Ég talaði bara við Bjarka (Má Ólafsson). Ég vildi koma hingað og fá tilfinninguna fyrir þessu. Það eru sjaldgæf forréttindi að fá að koma og heimsækja félag, því vanalega skrifar þú undir, lokar augunum og vonar það besta, en af því ég var samningslaus þá naut ég þeirra forréttinda að geta komið, fengið tilfinninguna og smá smjörþefinn af því að vera hér. Ég fór eftir innsæi mínu, líður vel með ákvörðun mína og tel hana rétta fyrir mig,“ sagði Caulker.
Aðstaðan kom Caulker skemmtilega á óvart - „Frábær vettvangur til að læra, þróa minn feril og hjálpa liðinu“
Athugasemdir
banner
banner