Það vakti athygli á föstudagskvöld að Emil Atlason byrjaði á bekknum hjá Stjörnunni eftir að þjálfarinn, Jökull Elísabetarson, hafði sagt í viðtali daginn áður að hann væri klár í slaginn.
Andri Rúnar Bjarnason byrjaði sem fremsti maður en þurfti að koma inn á og inn kom Emil. Emil hins vegar þurfti að fara aftur af velli. Jökull ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn. Hann var líka spurður út í fyrirliðann Guðmund Kristjánsson sem byrjaði sömuleiðis á bekknum.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 4 Breiðablik
„Gummi hefur verið stífur en er allt í lagi, leit vel út í dag, léttur og ferskur," sagði Jökull.
„Emil var kannski ekki alveg klár og kannski mistök hjá mér að reyna að ýta honum inn í dag. Við gerum hann bara kláran fyrir þriðjudaginn," sagði Jökull.
Stjarnan á leik gegn Val í undanúrslitum Mjólkurbikarsins annað kvöld. Sá leikur fer fram á N1 vellinum og hefst klukkan 19:30.
Athugasemdir