Íslensku atvinnumennirnir okkar voru á ferðinni í deildunum í Skandinavíu og Bandaríkjunum í dag og nótt.
Dagur Dan Þórhallsson byrjaði í liði Orlando City sem tapaði fyrir Cincinnati, 2-1, í MLS-deildinni.
Landsliðsmaðurinn fór af velli þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Orlando er í 5. sæti Austur-deildarinnar með 33 stig.
Ari Sigurpálsson, Júlíus Magnússon og félagar þeirra í Elfsborg gerðu markalaust jafntefli við Värnamo í sænsku úrvalsdeildinni.
Júlíus var í byrjunarliði Elfsborg en var skipt af velli á meðan Ari var fjarri góðu gamni.
Eftir leikinn mættu leikmenn Elfsborg ekki í viðtöl þar sem Oscar Hiljemark, þjálfari liðsins, hafði læst þá inn í búningsklefa og um leið tjáð blaðamönnum um stöðuna.
Greinilega ósáttur með sína menn sem eru í 4. sæti með 26 stig og misstu þarna af tækifæri til að nálgast topplið Mjällby sem er með 30 stig.
Hlynur Freyr Karlsson kom inn af bekknum hjá Brommapojkarna sem vann 3-0 sigur á Degerfors. Brommapojkarna eru í 12. sæti með 13 stig.
Sveinn Aron Guðjohnsen spilaði síðustu mínúturnar í 2-1 sigri Sarpsborg á Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeildinni.
Staðan var 1-1 þegar Sveinn Aron kom inn á en stuttu síðar kom sigurmarkið frá Franklin Tebo Uchenna.
Sarpsborg er í 7. sæti með 17 stig.
Brynjar Ingi Bjarnason lék allan leikinn í vörn Ham/Kam sem gerði 1-1 jafntefli við Bryne á útivelli. Viðar Ari Jónsson var ónotaður varamaður hjá Ham/Kam sem er í 12. sæti með 12 stig.
Athugasemdir