
Diljá Ýr Zomers er í landsliðshópnum sem tekur þátt á Evrópumótinu sem hefst í vikunni. Það var óvíst lengi vel hvort Diljá gæti verið með á mótinu þar sem meiðsli voru að stríða henni.
En rétt áður en hópurinn var valinn þá spilaði hún tvo leiki með U23 landsliðinu þar sem gekk vel.
En rétt áður en hópurinn var valinn þá spilaði hún tvo leiki með U23 landsliðinu þar sem gekk vel.
Diljá kom sér inn í landsliðið í byrjun árs 2023 en missti af síðustu verkefnum fyrir EM. Hún náði hins vegar að komast inn í lokahópinn. Hún lýsti því í viðtali við Fótbolta.net á dögunum hvernig það var fyrir sig þegar hópurinn var tilkynntur.
„Ég er ógeðslega glöð að fá að vera hérna yfir höfuð," sagði Diljá í viðtalinu.
„Það var stórt spurningamerki hvort maður myndi yfir höfuð fá að fara með. Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir það."
Var þetta tæpt fyrir mótið?
„Í rauninni fer ég úr 0 í 100 með þessum U23 leikjum. Það skipti held ég sköpum fyrir mig að fá að taka þátt í því og ná mínútum. Fyrstu mínúturnar mínar voru strax 45 og maður tók alveg áhættu til að eiga möguleika á þessu. Það hafðist."
Ertu búin að vera með í maganum hvort þú yrðir í hópnum?
„Ég er búin að ganga í gegnum þetta með henni. Það er búið að vera alls konar... en ég er ótrúlega stolt af henni," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, sem var einnig með í viðtalinu.
„Í vikunni fyrir hópinn var maður í fríi, en samt ekki. Ég gat varla borðað og hausinn var á þessu í heila viku. Svo fær maður að vita það á Instagram að maður sé í hópnum," sagði Diljá en leikmenn fengu að vita að þeir væru í hópnum á Instagram.
„Hann er 'no bullshit' gæi. Ég fékk símtal frá honum viku áður en hópurinn er tilkynntur. Það var ekkert verið að segja manni, sem er bara gott. Það heldur manni á tánum."
Er það ekki meiri tilfinning þegar þú sérð myndbandið og nafnið þitt þar?
„Það ætti að vera til vídjó hvernig ég var með Valgeiri (Lunddal, sem er kærasti Diljár). Við stukkum upp. Við vorum að reyna að klára þetta vídjó og ég kem þarna næst seinust. Ég hélt að þetta væri búið," sagði Diljá.
„Steini gerði þetta viljandi," sagði Karólína létt.
„Svo tekur við næsta stress, ég er að fara á EM. Beint út að hlaupa og keyra sig í gang. Ég er fyrst og fremst hér til að njóta," sagði Diljá.
Hún segir að meiðslin hafi verið gríðarlega flókin og það tók tíma að finna út úr því hvað var í gangi. Hún segir að þetta hafi verið mjög erfiðir mánuðir en hún er þakklát að vera í Sviss með íslenska hópnum.
„Ég gæti örugglega farið að keppa í Tour de France núna þar sem ég er búin að sitja í ég veit ekki hvað marga klukkutíma á hjólinu að hjóla. Ég held samt að það hafi skilað sér á endanum," sagði Diljá en allt viðtalið má hlusta á í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir