Paris Saint Germain 4 - 0 Inter Miami FC
1-0 Joao Neves ('6 )
2-0 Joao Neves ('39 )
3-0 Tomas Agustin Aviles ('44 , sjálfsmark)
4-0 Achraf Hakimi ('45 )
1-0 Joao Neves ('6 )
2-0 Joao Neves ('39 )
3-0 Tomas Agustin Aviles ('44 , sjálfsmark)
4-0 Achraf Hakimi ('45 )
PSG rúllaði yfir Inter Miami í 16-liða úrslitum á HM félagsliða i dag.
PSG var með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik en Lionel Messi, fyrrum leikmaður PSG og Luis Suarez, í fremstu víglínu hjá Inter Miami sáu ekki til sólar.
PSG komst yfir snemma leiiks þegar varnarmenn Inter Miami skildu Joao Neves eftir einn og óvaldaðan á fjærstönginni eftir aukaspyrnu og hann skoraði af öryggi.
Hann bætti síðan við öðru markinu þegar um fimm mínútur voru til loka fyrri hálfleiks. Leikmenn PSG voru hins vegar ekki búnir að segja sitt síðasta. Tomas Aviles skoraði sjálfsmark eftir fyrirgjöf frá Desire Doue og Achraf Hakimi bætti fjórða markinu við áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.
Inter Miami náði ekki einni tilraun að marki í fyrri hálfleik en liðið fékk tækifæri í þeim seinni en náði ekki að klóra í bakkann og öruggur sigur PSG staðreynd. PSG mætir sigurvegaranum úr leik Flamengo og Bayern, sem mætast í kvöld, í 8-liða úrsltum.
Athugasemdir