„Vonbrigði. Við þurftum ekki að tapa þessum leik en gerðum það samt." sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir tap gegn KR á Avisvellinum í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 3 - 2 FH
Við vorum ágætir í fyrri hálfleik og vorum sterkir varnarlega. Við töluðum um það að við gætum haldið betur í boltann innan liðsins og spila betur í seinni hálfleik, svo komum við út í síðari hálfleikinn fengum á okkur mark úr föstu leikatriði og byrjuðum aldrei seinni hálfleikinn en svo henti Kjartan Kári (Halldórsson) til okkar líflínu og skoraði frábært mark úr aukaspyrnu en það er þannig í fótbolta að það þarf að elta mennina sína og dekka menn í teignum og við gerðum það ekki og þessvegna fengum við á okkur þrjú mörk."
„FH á ekki að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum, við erum með menn sem eru mjög sterkir, bæði í loftinu og á grasinu og eru góðir að verjast. KR er ekki með stærsta liðið í deildinni og það kom þeim svolítið inn í leikinn og þeir fengu sjálfstraust við það."
Nánar var rætt við Heimi Guðjónsson í viðtalinu hér að ofan.