KR vann dýrmætan og langþráðan sigur á FH og Víkingur er þremur stigum fyrir ofan Breiðablik á toppnum eftir nauman sigur á Aftureldingu.
Hrannar Snær Magnússon fékk fyrsta tækifæri leiksins þegar hann komst inn á teiginn en átti skot og boltinn fór rétt framhjá markinu.
Afturelding fékk svo tvö tækifæri stuttu síðar. Gunnar Bergmann Sigmarsson átti skot sem Pálmi Rafn Arinbjörnsson, sem var í marki Víkinga í kvöld, varði út í teiginn. Aron Jóhannsson fékk boltann en átti skot yfir markið.
Hrannar Snær Magnússon fékk fyrsta tækifæri leiksins þegar hann komst inn á teiginn en átti skot og boltinn fór rétt framhjá markinu.
Afturelding fékk svo tvö tækifæri stuttu síðar. Gunnar Bergmann Sigmarsson átti skot sem Pálmi Rafn Arinbjörnsson, sem var í marki Víkinga í kvöld, varði út í teiginn. Aron Jóhannsson fékk boltann en átti skot yfir markið.
Snemma í seinni hálfleik náðu heimamenn forystunni þegar Gylfi Þór Sigurðsson átti frábæra sendingu inn fyrir vörn Aftureldingar á Nikolaj Hansen. Hann komst framhjá Jökli Andréssyni og skoraði af öryggi. Aðeins tveimur mínútum síðar jöfnuðu gestirnir þegar Aron Jóhannsson setti boltann í netið eftir góða sókn.
Nikolaj Hansen tryggði Víkingum síðan sigurinn þegar skammt var til loka leiksins. Oliver Ekroth átti frábæra sendingu á Karl Friðleif sem renndi boltanu á Nikolaj sem skoraði á opið markið.
KR var mun meira með boltann gegn FH í fyrri hálfleik og líklegri fyrsta hálftímann en FH-ingar refsuðu þegar Kjartan Kári Halldórsson kom boltanum í netið og sá til þess að FH var með forystuna í hálfleik.
KR jafnaði metin strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Ástbjörn Þórðarson stýrði boltanum í netið eftir hornspyrnu. Kjartan Kári skoraði sitt annað mark og kom FH aftur yfir þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu.
KR jafnaði metin strax í kjölfarið þegar Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði örugglega eftir að hafa sloppið í gegn.
KR-ingar fengu úrvals tækifæri til að tryggja sér sigurinn undir lok leiksins og í uppbótatíma náðu þeir að koma inn sigurmarkinu. Það var Eiður Gauti sem skoraði sitt annað mark þegar Aron Sigurðarson átti sendingu fyrir markið og Eiður mætti boltanum og skoraði.
KR fer upp í 8. sæti með 16 stig, upp fyrir FH sem er með 14 stig í 9. sæti. Víkingur er eins og fyrr segir á toppnum nú með 29 stig en Afturelding er í 7. sæti með 17 stig.
KR 3 - 2 FH
0-1 Kjartan Kári Halldórsson ('27 )
1-1 Ástbjörn Þórðarson ('47 )
1-2 Kjartan Kári Halldórsson ('63 )
2-2 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('66 )
3-2 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('91 )
Lestu um leikinn
Víkingur R. 2 - 1 Afturelding
1-0 Nikolaj Andreas Hansen ('50 )
1-1 Aron Jóhannsson ('52 )
2-1 Nikolaj Andreas Hansen ('79 )
Lestu um leikinn
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 13 | 9 | 2 | 2 | 26 - 14 | +12 | 29 |
2. Breiðablik | 13 | 8 | 2 | 3 | 24 - 18 | +6 | 26 |
3. Valur | 13 | 7 | 3 | 3 | 35 - 19 | +16 | 24 |
4. Stjarnan | 13 | 6 | 2 | 5 | 24 - 24 | 0 | 20 |
5. Fram | 13 | 6 | 1 | 6 | 21 - 18 | +3 | 19 |
6. Vestri | 13 | 6 | 1 | 6 | 13 - 11 | +2 | 19 |
7. Afturelding | 13 | 5 | 2 | 6 | 15 - 17 | -2 | 17 |
8. KR | 13 | 4 | 4 | 5 | 34 - 34 | 0 | 16 |
9. FH | 13 | 4 | 2 | 7 | 19 - 19 | 0 | 14 |
10. ÍBV | 13 | 4 | 2 | 7 | 13 - 21 | -8 | 14 |
11. KA | 13 | 3 | 3 | 7 | 12 - 25 | -13 | 12 |
12. ÍA | 13 | 4 | 0 | 9 | 15 - 31 | -16 | 12 |
Athugasemdir