Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
Maggi Már: Mér fannst við vera betri
Óskar Hrafn: Vonaði að það væri undantekningin sem sannaði regluna
Sölvi um Óskar Borgþórs: Bara "no comment"
Nikolaj Hansen: Ég er framherji og vil skora mörk
Heimir Guðjóns: Eigum ekki að fá á okkur mörk úr föstum leikatriðum
Morten Ohlsen eftir tap Vestra: Okkur var refsað
Gísli Laxdal: Ég potaði honum inn hundrað prósent
Viktor varð ekki stressaður: Kennie stendur fyrir sínu
Lárus Orri: Áttum okkur á því að þetta er bara einn sigur
Láki: Þurfum að hafa meira fyrir því að skora mörk
Rúnar Kristins: Það bjargaði okkur alveg
Aðstaðan kom Caulker skemmtilega á óvart - „Frábær vettvangur til að læra, þróa minn feril og hjálpa liðinu“
Frá Ólafsvík á EM - „Maður er í þeim forréttindahópi"
Draumurinn rættist núna eftir svekkjandi tíðindi 2022
Upplifir fyrsta stórmótið með Íslandi - „Eiginlega engin orð fyrir það"
Skelltu sér í sjóinn og fengu góðan mat - „Bara flottara í persónu"
Taka stolt á móti Íslandi - „Eitthvað sem gerist bara einu sinni á lífsleiðinni"
Bróðir Ragnars Braga sló heimsmet í dag - „Gæti ekki verið stoltari"
Fékk að heyra það úr stúkunni - „Eins og einhver hefði lekið þeim upplýsingum"
Alli Jói: Ætla ekki að henda neinum undir rútuna
   sun 29. júní 2025 20:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lárus Orri: Áttum okkur á því að þetta er bara einn sigur
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
ÍA vann Vestra á Ísafirði í dag en þetta var fyrsti leikur Lárusar Orra Sigurðssonar sem þjálfari liðsins. Hann ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Vestri 0 -  2 ÍA

„Mjög ánægður með vinnuframlagið hjá strákunum, einbeitinguna, viljann, kraftinn. Ánægður með gömlu refina í liðinu og ungu strákana sem komu inn. Heilt yfir er ég mjög ánægður," sagði Lárus Orri.

Það er gríðarlega mikilvægt að byrja svona sterkt segir Lárus.

„Það er gríðarlega mikilvægt, ekki fyrir mig bara fyrir okkur sem lið. Fyrstu 20 mínúturnar voru menn að átta sig á því hvað við vorum að gera. Eftir það þá fannst mér við vera betri aðilinn í leiknum og áttum þennan sigur skilið," sagði Lárus Orri.

Hann tekur við liðinu á botni deildarinnar en liðið átti frábært tímabil í fyrra og var nálægt því að tryggja sér Evrópusæti.

„Staðan upp á Skaga núna er þannig að ég er að taka við mjög góðu búi af honum Jóni Þór. Hann er búinn að gera mjög gott starf upp á Skaganum," sagði Lárus Orri.

„Þeir lentu í erfiðu tímabili núna og svo fór sem fór. Jón Þór veit það jafn vel og ég að fótboltinn er stundum skrítinn en ég er að taka við mjög góðu búi. Það er frábært starfsteymi hérna, góðar aðstæður, góðir leikmenn en ég held við áttum okkur allir á því að þetta er bara einn sigur og við fögnum í kvöld og byrjum svo að undirbúa okkur fyrir Fram leikinn."
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 13 9 2 2 26 - 14 +12 29
2.    Breiðablik 13 8 2 3 24 - 18 +6 26
3.    Valur 13 7 3 3 35 - 19 +16 24
4.    Stjarnan 13 6 2 5 24 - 24 0 20
5.    Fram 13 6 1 6 21 - 18 +3 19
6.    Vestri 13 6 1 6 13 - 11 +2 19
7.    Afturelding 13 5 2 6 15 - 17 -2 17
8.    KR 13 4 4 5 34 - 34 0 16
9.    FH 13 4 2 7 19 - 19 0 14
10.    ÍBV 13 4 2 7 13 - 21 -8 14
11.    KA 13 3 3 7 12 - 25 -13 12
12.    ÍA 13 4 0 9 15 - 31 -16 12
Athugasemdir