Jurgen Klopp, fyrrum stjóri Liverpool og núverandi yfirmaður hjá Red Bull samsteypunni, er ekki sáttur með fyrirkomulagið á HM félagsliða í ár.
RB Salzburg tók þátt á mótinu en féll úr leik í riðllakeppninni.
RB Salzburg tók þátt á mótinu en féll úr leik í riðllakeppninni.
„Þetta á að snúast um leikinn en ekki allt í kring og þess vegna er HM félagsliða versta hugmynd sem hefur verið framkvæmd í fótboltanum. Fólk sem hefur aldrei haft neitt að gera með dagsdaglegan rekstur er að koma þessu á laggirnar," sagði Klopp.
„Það er bilaður peningur í þessu en þetta er ekki fyrir öll félög. Á síðasta ári var Copa America og EM, nú er HM félagsliða og á næsta ári er HM. Það er því ekki almennileg hvíld fyrir leikmenn, hvorki líkamleg né andleg."
Kaveh Solhekol, fréttamaður á Sky Sports, var allt annað en sáttur með þessi ummæli hjá Klopp.
„Ef þú hefur ekki gaman af HM félagsliða, ekki horfa. Fólk má gera það sem það vill, þú getur farið að spila padel, farið í sund eða horft á eitthvað annað í sjónvarpinu, farið í göngutúr eða út að borða. Þetta er frjáls heimur," sagði Solhekol.
„Eigendur Chelsea eru í skýjunum með að vera hérna og að græða mikinn pening. Þeir eru örugglega búnir að græða um 40 milljónir punda hingað til. Pep Guardiola er allt annar maður frá því að vera stressuð og áköf manneskja sem við sjáum á meðan úrvalsdeildin er í gangi.
Athugasemdir