Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   fim 31. maí 2018 11:55
Magnús Már Einarsson
Gylfi gæti spilað gegn Noregi
Icelandair
Gylfi ræðir við Heimi Hallgrímsson þjálfara á æfingu í dag.
Gylfi ræðir við Heimi Hallgrímsson þjálfara á æfingu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson gæti spilað sinn fyrsta leik í tæpa þrjá mánuði þegar Ísland mætir Noregi í vináttuleik á Laugardalsvelli á laugardagskvöld.

Gylfi meiddist á hné gegn Brighton í mars en hann hefur hafið æfingar með íslenska landsliðinu á nýjan leik.

„Það er möguleiki á því," sagði Helgi Kolviðsson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, aðspurður hvort Gylfi verði með.

„Þetta fer eftir því hvernig hans staða er. Hann verður að meta það með okkar sjúkrateymi og lækni. EF hann getur tekið mínútur þá er ekkert sem mælir gegn því."

„Hann hefur æft mikið og tekið mikið af aukaæfingum. Hann er mættur fyrstur á æfingu og er 110% í því sem hann gerir. Maður þarf frekar að bremsa svona stráka en annað. Ef það er möguleiki á að hann verði með í leiknum þá munum við að sjálfsögðu nýta það."


Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, verður ekki með gegn Noregi en aðrir leikmenn í hópnum koma til greina í leikinn að sögn Helga.

SJá einnig:
Aron Einar kominn til Íslands: Líður þannig að ég nái Argentínuleiknum
Athugasemdir
banner
banner
banner