Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Nýliðinn Linda Líf: Maður er valin af ástæðu
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
   mán 15. nóvember 2010 17:50
Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Gauti: Taldi ÍBV besta kostinn
Brynjar Gauti í búningi ÍBV í dag.
Brynjar Gauti í búningi ÍBV í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það er gaman að taka skrefið upp á við og kominn tími á það," sagði Brynjar Gauti Guðjónsson fyrirliði Víkings frá Ólafsvík sem í dag gekk í raðir ÍBV og samdi við Vestmannaeyjaliðið til þriggja ára.

,,Mér leist best á ÍBV, það er flottur þjálfari og þetta er flott félag sem gerði góða hluti í sumar og ætlar sér stærri hluti. Það er gaman að vera partur af því."

,,Það voru einhver önnur félög sem höfðu samband, það er alltaf einhver áhugi. Ég taldi ÍBV vera besta kostinn af þessum og stend við það."


Brynjar Gauti er miðvörður og fyrir hjá ÍBV eru tveir miðverðir sem stóðu sig virkilega vel í sumar. Þeir Eiður Aron Sigurbjörnsson og Rasmus Christiansen svo Brynjar Gauti er ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.

,,Neinei, enda þýðir það ekki alltaf. Ég er búinn að tala við Heimi og hef fulla trú á að ég geti unnið mér sæti í liðinu og stefni á það náttúrulega."

Brynjar Gauti er aðeins 18 ára gamall en hefur þrátt fyrir það spilað yfir 60 meistaraflokksleiki með Víkingi Ólafsvík auk þess að spila með yngri landsliðum Íslands. En er erfitt að yfirgefa heimahagana?

,,Þetta var mjög erfið ákvörðun. Ég er búinn að vera lengi hjá Víking og þeir eru búnir að gera mikið fyrir mig. Það er alltaf erfitt að fara frá sínu uppeldisfélagi."

Nánar er rætt við Brynjar Gauta í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
banner
banner
banner