Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Nýliðinn Linda Líf: Maður er valin af ástæðu
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
   fim 10. febrúar 2011 23:38
Hafliði Breiðfjörð
Jón Páll: Þær voru rotaðar í byrjun - ég er ekki kvenmaður
Kvenaboltinn
,,Þetta var alls ekki nógu gott hjá okkur í heildina enda eru fjögur núll úrslit ekki eitthvað sem maður sækist eftir í leik sem skiptir miklu máli í lokaniðurstöðu mótsins," sagði Jón Páll Pálmason þjálfari kvennaliðs Fylkis eftir 0-4 tap gegn Val í Egilshöll í kvöld.

Gríðarlegur getumunur var á liðunum í leiknum í kvöld en er í rauninni svona mikill getumunur eða komu hans leikmenn svona illa stemmdir til leiks?

,,Leikurinn endaði 4-0 svo það er greinilega munurinn á liðunum í dag. Það er ekkert flóknara en svo. Valsliðið spilaði fyrsta hálftímann frábærlega, pressuðu okkur mjög framarlega og mínir leikmenn tóku ekki nógu vel á móti."

,,Þær voru mjög stressaðar, héldu boltanum afar illa og voru ekki samkvæmar sjálfum sér. Við höfum spilað fullt af leikjum í vetur sem hafa gengið þokkalega vel en á móti mun slakari liðum en Valsliðið er."

,,Valsliðið spilaði mjög vel í fyrri hálfleik en slakaði svo á klónni í seinni hálfleik. Frammistaða okkar var mun betri í seinni hálfleik en fyrri hálfleik en leikurinn var búinn eftir fyrri hálfleikinn. Það var 4-0 og við áttum erfitt uppdráttar."

,,Ég verð samt að hrósa mínu liði fyrir seinni hálfleikinn. Við reyndum, héldum boltanum betur í seinni hálfleik sköpuðum nokkur færi og hefðum átt að skora. En svona er þetta, þú verður að mæta frá fyrstu mínútu, annars ertu tekinn í bakaríið af liði eins og Val sem er búið að vera langbesta liðið á landinu í mörg ár. Það var hugur í liðinu en við vorum rotaðar í byrjun, þær voru rotaðar í byrjun, ég er ekki kvenmaður."


Nánar er rætt við Jón Pál í sjónvarpinu hér að ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner