,,Mér fannst þetta góður fótboltaleikur, rosalega hátt tempó og liðið á góðu skriði. Ég held að áhorfendur hafi skemmt sér mjög vel, þeir fengu fullt fyrir peninginn þó það hafi verið frítt inn," sagði Sigursteinn Gíslason þjálfari Víkings eftir 3-3 jafntefli við Víking í Lengjubikarnum í gærkvöld.
,,Ég hrósaði mínum mönnum inni í klefa fyrir gott hugarfar og eins og ég sagði við þá, mér finnst við hafa tapað tveimur stigum. Við tökum þetta eina, þeir fengu dæmt af sér mark í lokin og ég er ekkert viss um að það hafi verið ólöglegt, ég sá það ekki almennilega. En við tökum þetta stig og erum sáttir. Erum búnir að spila við tvö úrvalsdeildarlið og fjórir punktar og við erum sáttir."
Lið Leiknis var hársbreidd frá að vinna sér sæti í Pepsi-deildinni á síðust leiktíð og þótti standa sig mjög vel, nokkkuð sem virðist halda áfram núna.
,,Það er nú bara febrúar og við erum bara rólegir. Ég sagði við strákana að vonandi erum við ekki komnir of langt í ferlinu og að toppa á vitlausum tíma. En ég hef engar áhyggjur af því, þetta eru flottir strákar sem við erum með og tilbúnir að leggja á sig. Ég kvíði engu, ef þetta hugarfar er til staðarí öllum leikjum þá erum við í mjög góðum málum."
,,Við lentum í því fyrir tíu dögum síðan að við tókum æfingaleik við Aftureldingu og menn skitu upp á herðablöð. Þá tókum við bara smá fund og sögðum að þetta væri óásættanlegt, menn gætu ekki valið sér leiki sem þeir eru góðir í og aðra til að slappa af. Menn færu bara í alla leiki til að vinna. Það er hugarfar sem við viljum hafa í Leikni. Það er að síast inn og miðað við tvo síðustu leiki er hugarfarið frábært og ég kvíði því ekki ef það verður áfram."
Leiknir hefur fengið Eggert Rafn Einarsson úr KR og Pape Mamadou Faye frá Fylki í vetur en báðir voru meiddir í kvöld. En vill Sigursteinn styrkja frekar?
,,Ekki í augnablikinu, en það bara kemur í ljós. Það vantaði nokkra menn í liðið núna, Eggert og Pape og Fannar miðjumann sem er erlendis. Það voru margir tæpir hjá okkur í dag og ég átti erfitt með að stilla upp liði í byrjun. En þeir sem byrjuðu stóðu sig frábærlega og ég var ekki svikinn af einum einasta leikmanni."





















