,,Þetta er gríðarlega ánægjulegt, eftir slakan leik á móti HK ákváðum við að rífa okkur upp af rassinum og gerðum það sæmilega, fyrir utan seinni hálfleik kannski," sagði Ómar Hákonarson sem skoraði fyrstu tvö mörk leiksins fyrir Fjölni þegar liðið vann Þrótt 3-2 í kvöld.
,,Fyrri hálfleikur var mjög öflugur fannst mér af okkar hálfu. Við vorum mikið betra liðið á vellinum. Svo gefum við þeim tvö mörk í seinni hálfleik. Algjör byrjanda mistök og þeir komast inn í leikinn. En við náum grísamarki þarna og það var bara mjög gott."
,,Það var gríðarlega gaman að skora, ég er búinn að vera frekar tæpur undanfarið svo þetta var mjög fínt. Við erum með fínan hóp, það eru ungir strákar að koma sterkir inn. Fjórir úr 2. flokki voru að spila núna."
,,Við ætlum klárlega að vera þarna uppi, ef við hefðum tapað þessum leik hefðum við verið dottnir út úr þessum pakka, þetta var bara do or die fyrir okkur."























