„Bara ánægður með þrjú stig. Lögðum að sjálfsögðu upp með að ná þeim og okkur tókst það, bara fín tilfinning,“ sagði Atli Sigurjónsson leikmaður Þórs sem var mjög góður í kvöld þegar Þór sigraði Víking 2-1 í miklum baráttuleik á Þórsvellinum. Stigin voru sérstaklega mikilvæg í ljósi þess að Fram sigraði Víking í kvöld og því náðu Þórsarar að breikka bilið milli sín og Víkings.
„já við ætlum að gefa núna í, eigum nokkra heimaleiki í röð og við ætlum að klára þá alla og fljúga aðeins upp töfluna“
Viðtalið við Atla má sjá í heild sinni hér að ofan.






















